föstudagur, 25. maí 2012

Undarlegur afsláttur í World Class


Ég var að skrá mig á Crossfit námskeið (4 vikur) hjá World class þar sem ég
er nú þegar viðskiptavinur. Almennt verð á þetta námskeið er 21.900 kr. Ég
fæ 5.280 kr í afslátt vegna þess að ég er með ótímabundin samning við
stöðina og borga 6.149 kr á mánuði í áskrift.
Þar sem ég borga alltaf 6.149 kr á mánuði er ég að borga 22.769 kr sem er
869 kr meira en þeir sem eru ekki viðskiptavinir World class...
Kv. Agnes

fimmtudagur, 24. maí 2012

Rangar verðmerkingar í Krónunni

Er allur þjófnaður í matvöruverslunum tilkynntur til lögreglu? nefnist athyglisverð grein eftir Stefán Hrafn Jónsson í Fréttablaðinu í dag. Þar fjallar hann um rangar verðmerkingar í matvöruverslunum. Hann tekur Krónuna sérstaklega fyrir og rangt verð á kalkúna. Krónan hefur oft legið undir ámæli hér vegna akkúrats þessa, að geta ekki verðmerkt almennilega. Ég skil nú bara ekki afhverju verslunin tekur sig ekki bara saman í andlitinu með þetta. Er svona erfitt að hafa verðmerkingar í lagi?

En allavega. Grein Stefáns er hér

mánudagur, 21. maí 2012

Bílabón: N1/Bónus


Fór í Bónus um helgina að versla í matinn eins og venjulega. Rakst þar á bílabón. Þetta er Sonax bón alveg eins og ég hafði keypt í N1 fyrir nokkru og mundi að mér þótti það ansi dýrt í N1 eins og reyndar allt annað þar.

Sonax bón í Bónus 250 ml 690 kr

Sonax bón í N1 250 ml 1610 kr

Ég bara spyr: Má þetta alveg???

Kv, Viktor

sunnudagur, 20. maí 2012

Sextíma okurgrill


Við hjónin keyptum okkur grill hjá Húsasmiðjunni, sem er vart frásögu færandi. Nema þegar búið var að greiða fyrir grillið var okkur afhentur ferkantaður kassi sem innihélt ósamansett grill. Skemmst er frá að segja að það tók mig 6 tíma að púsla þessu saman.

Þegar Húsasmiðjan auglýsir grillin þá eru þau samansett á öllum myndum og eins er sýningargrill samansett í verslun. Hvergi er nefnt að grillið fáist aðeins í ferköntuðum kassa með hundruðum aukahluta sem þurfi að púsla saman á 6 tímum.

Mín meining er að verið sé að okra á grillum ef þau eru seld á einhvers konar framleiðslustigi en auglýst sem heill og samansettur hlutur.

Kveðja, Gunnar

fimmtudagur, 17. maí 2012

Líf og sjúkdómatryggingar


Tryggingafélögin auglýsa grimmt þessa stundina og eru stöðugt að minna
okkur sem yngri eru á mikilvægi þess að vera líf og sjúkdómatryggð. Ég er
búinn að sækja um líf og sjúkdómatryggingu hjá öllum tryggingafélögunum og
fæ allsstaðar neitun á þeim forsendum að ég sé of þungur. Ástæðan sem ég
fæ þegar ég leita skýringa er að það sé of mikil áhætta fólgin í því að
tryggja mig þar sem ég gæti hvenær sem er fengið sykursýki, heilablóðfall,
hjartaáfall og fleiri heilsutengda sjúkdóma. Bíddu nú aðeins við, eru
tryggingafélögin með þessu að gefa þau skilaboð að feitir einstaklingar
séu í meiri áhættuhóp en annað fólk á að fá hjarta og æðasjúkdóma ásamt
ýmsum öðrum kvillum? Hvað með þá sem reykja? Hvað með þá sem eru
sykursjúkir eða berjast við sambærilega sjúkdóma? Getur verið að þeir fái
sínar tryggingar þegjandi og hljóðalaust en af því að þú ert feitur þá
máttu éta það sem úti frýs?

Kv.
Einn ósáttur

þriðjudagur, 8. maí 2012

Verð á hjólum: Ísl/Danmörk

Ég var að skoða verð á reiðhjólum, og fór inn á orninn.is. Þar fann ég ágætis hjól: Trek 4900 Disc. Það kostar 200.000 kr - http://orninn.is/V%C3%B6rur/Rei%C3%B0hj%C3%B3l/Fjallahj%C3%B3l/Herrar/TREK_4900_Disc

Fyrir einstaka forvitni langaði mig að vita hvað þetta hjól kostar úti. Trek halda sjálfir út ágætis verðmiðunarsíðu fyrir hjólin sín, ég ákvað að skoða hvað þetta sama hjól kostar í Mekka hjólreiðamannsins, Danmörku: http://www.trekbikes.com/dk/da/bikes/mountain/sport/4_series/4900_disc/# Jú, 5.990 DKR. Sem er uþb. 132.000 IKR. Sem sagt, það munar 68.000 eða 66%. (Bæði verðin innihalda VSK, 25% í Danmörku, og 25.5% hér) (Síðan leggst reyndar 10% tollur á reiðhjól hér, þannig að það ætti að kosta um 145.000)

Ég trúði þessu ekki, þannig að ég fann 2 verslanir í Kaupmannahöfn, og verðið stenst. 5990 í báðum verslunum. Prófaði aðra vinsæla verslun, Markið. Fann ágætis hjól, Scott Scale 80 Disc. Það kostar 170.000 þar: http://markid.is/?item=842&v=item&category-group=hjol Í random búð í Danmörku er þetta sama hjól á 5.500 danskar (ca. 134.000 með 10% tolli) http://cykelexperten.dk/cms/modules/shop/public_product_view.php?slang=1&path=71,232&id=4623

Aðeins skárra, en samt töluverður munur.
 Bestu kveðjur, Jón Ragnarsson

mánudagur, 7. maí 2012

ViðskiptaVINUR Tals?

Málið er það að ég hef verið viðskiptavinur TALS í langan tíma. En svo gerist það að ég gat ekki greitt reikning frá þeim með eindaga 2. Apríl síðasliðinn. Og ég er ekki enn búin að greiða hann út af ástæðu sem ég ætla ekki að ræða um hér. En viti menn, hvað hefur gerst í dag, 3ja maí. Krafan á hendur mér hefur aukist til mikilla muna, úr kr. 8.516 í 13.782, á aðeins einum mánuði og einum degi til viðbótar. Er einhver að tala um að það sé engin mafía hér. Og hversvegna er þetta gert svona? Jú sett var á sínum tíma reglugerð af manni fólksins sem hafði mikinn jöfnuð í huga. Og samkvæmt þessari reglugerð, sem reyndar var breytt aðeins seinna (en bara pínupons), er uppskriftin af því að ég er að fá svona mikla óávöxtun á skuld mína, og Tal fer eftir henni nákvæmlega, no mercy. En það er hægt að gera aðeins betur en þetta því að ef ég geri skriflegan samning á morgun um greiðslu þá má bæta við 2.700 krónum (íslenskum) til viðbótar. Og þá yrði skuldin aðeins 16.482 en helmingurinn af því er 8.241 sem er aðeins minni en höfuðstóllinn. Ég hef verið viðskiptavinur Tals í allan þennan tíma en í dag var mér tjáð að ekki væri hægt að fella niður innheimtugjöld, ekkert svoleiðis, engin minnkun, engin miskun. En hver vill vera viðskiptavinur félags sem beytir viðskiptavinum sínum svona þvingunum að það er búið að nærri tvöfalda reikninginn á innan við tveimur mánuðum? Já mér er spurn. Og við erum ekki að tala um að ég hafi keypt eitthvað af þeim einu sinni, nei þetta hefur verið viðvarandi samband. Það sem verra er að ég þarf að vera í viðskiptum við þá út þennan mánuð að því að ég get ekki farið fyrr. En að vera vinur TALs er ekki lengur í myndinni. Og tel ég að það þurfi að endurskoða notkun orðsins „viðskiptavinur“ á viðskipti milli neytenda og margra fyrirtækja því að það er alltaf verið að taka okkur í F****** R********, þurrt. Og þetta var í boði Auðar. Kveðja, fyrrum vinur

sunnudagur, 6. maí 2012

Glerkrukkur?!

Kaupir einhver tómar glerkrukkur sem eru 20 krónur dýrari en krukkur með einhverju í? Þessi mynd er fengin af Facebooksíðu Halldórs Högurðar.

sunnudagur, 15. apríl 2012

Ég er REIÐ! Svindl á neytendum

Hér má lesa mikla og ítarlega úttekt Þórhildar Löve á kjúklingalærum sem hún keypti í Fjarðarkaupum. Titillinn greinar Þórhildar segir sitthvað um innihaldið: Ég er REIÐ! Svindl á neytendum.

miðvikudagur, 11. apríl 2012

Okur í Hlíðarfjalli

Ég fór á skíði á Akureyri um páskana og þar er hægt að kaupa svartan ruslapoka sem búið er að klippa úr fyrir hendur og höfuð sem maður getur klætt sig í þegar það fer að rigna.

Þarna var hægt að kaupa 1 stk. svartann ruslapoka á 150 kr.
Á rúllunni eru 50 stk. af pokum.
Út í búð er hægt að kaupa svona rúllu með 50 pokum á ca. 3300 kr. sem þíðir að pokinn er á 66 kr. (eflaust ódýrara ef þeir fá afslátt)

Hlíðarfjall kaupir semsagt pokann á 66 kr. en selur hann svo áfram á 150 kr.



Kveðja,
Ein á skíðum

sunnudagur, 8. apríl 2012

Skóbúðin Focus

Ég ákvað að kaupa skópar handa kærustunni minni í afmælisgjöf og fór með henni í Smáralindina þar sem að við enduðum í skóbúðinni Focus. Þar sá hún leðurskó sem að henni leist vel á þannig að ég keypti þá handa henni.
Skórnir kostuðu 16.995 kr og voru víst alvöru leður og henni þótti þeir mjög flottir. Allavega þá förum við úr búðinni og yfir í aðra búð þar sem að við hittum vinkonu okkar og kærastan mín tekur skóna úr kassanum til að sýna henni, nema hvað að þá skoðum við þá betur og kemur í ljós að þeir eru gallaðir (byrjað að rakna upp einn saumurinn á öðrum skónum) þannig að við förum yfir í Focus aftur og látum vita af þessu og fengum annað par. Við vorum aðeins of fljót á okkur að skoða þá ekki líka gaumgæfilega vegna þess að þegar að við vorum komin út í bíl og lögð af stað heim þá sáum við að þeir voru líka gallaðir (bæði rennilásinn á öðrum skónum búinn að rakna upp og lausir saumar á báðum skónum) en þá var klukkan orðin of margt þannig að við þurftum að skila þeim næsta laugardag (páskafrí þarna inn á milli og allt lokað). Allt í lagi, við förum næsta laugardag í búðina og látum vita að þetta sé annað skóparið sem að við fáum sem að er gallað þannig að við viljum helst bara fá endurgreiðslu (fyrst að þetta er frágangurinn á skónum þarna þá kærum við okkur ekki um að eyða tæplega 17 þús kalli þarna í vöru sem að er gölluð) en okkur er neitað um endurgreiðslu. Eftir smá þræting og að hafa fengið svörin "ég sem ekki reglurnar" og "ég get sent þá til skósmiðs en þá koma þeir ekki aftur fyrr en einhvern tímann í næstu viku" frá starfskonunni (auk þess bauð hún okkur að fá aftur gallaða parið sem að við skiluðum fyrst, sem gefur að skilja að þá séu þeir að setja aftur gallaðar vörur í sölu) þá gátum við fengið inneignarnótu frá NTC búðunum (Companys, Deres, EVA, Focus, Gallerí Sautján, GS skór, Karakter, Kultur, Kultur menn, smash, Sparkz, Urban), fyrst að það var eina mögulega lausnin þarna þá urðum við að sætta okkur við það þó svo að fyrir mitt leyti þá vil ég ekki versla við þetta batterí fyrst að þeir neita endurgreiðslu þrátt fyrir að maður sé með kassakvittun, posastrimil og að hafa fengið í tvígang gallaða vöru. Allavega þá er það á hreinu að ég versla ekki aftur við Focus þegar að ég kaupi skó handa kærustunni.
Dabbi V

laugardagur, 24. mars 2012

Svindlkassi í Smáralind

Hér er sjóðheitt myndband um "barna"-spilakassa sem má finna í Smáralindinni. Algjört svindl eins og er útskýrt vel í þessu metnaðarfulla myndbandi, sem Sigurður Kristinn Ómrasson gerði:

http://www.youtube.com/watch?v=QgKUJityS1A

föstudagur, 23. mars 2012

Okursnúður í Kvosinni

Ég bý nálægt Ingólfstorgi og hef stundum keypt einhverja matvöru í Kvosinni, Aðalstræti. Það gerist þó æ sjaldnar því að þar hefur verð farið sí-hækkandi á flestu sem selt er. Í dag tók steininn endanlega úr þegar ég ætlaði að kaupa einn klassískan snúð með súkkulaði. Verðið var 329 krónur og ég afþakkaði pent.

Til samanburðar hringdi ég í nokkur ágæt bakarí og spurði um verð á snúðum:

Björnsbakarí - 210 kr.
Bernhöftsbakarí - 220 kr.
Mosfellsbakarí - 230 kr.
Bakarameistarinn - 235 kr.
Bakarí Sandholt - 240 kr.

Eins og sjá má eru öll þessi bakarí með tiltölulega hófleg verð á snúðum meðan Kvosin okrar á sínum viðskiptavinum. Það er vissulega umhugsunarvert að líklega eru margir viðskiptavinir þeirra erlendir ferðamenn af hótelunum allt í kring sem átta sig ekki vel á þessu "rip-offi". Þetta er sérlega leitt því að þessi verslun lofaði góðu þegar hún opnaði.

Með kveðju,
Sigurður Hr. Sigurðsson.

sunnudagur, 18. mars 2012

Verðleynd í Krónunni

Ég varð ekki beint hrifin þegar Neytendastofa ákvað allt í einu að það væri stórhættulegt að við neytendur sæjum á pökkuðum kjötvörum hvað þær kostuðu, sem sé sæjum verðið. Nú virðist þessi verðleynd vera að breiða sig út um búðirnar allar. Ég er alltaf að reka mig á það í Krónunni að verðleynd virðist hvíla yfir sumum ávöxtum! Einhver kann að segja, þá er bara að fara í skannann - OK, en hann er bara fyrir kjötvörur, sumar alla vega. Ég lenti í því um daginn að grípa upp kjúkling sem yfir var stórt skilti: TILBOð, en það vantaði bara verðið. Ég í helvítis skannann: "vara óþekkt, ekki á skrá". Ég á kassann: "Sorrí, þetta er ekki á skrá." Það var sem sé ekki hægt að kaupa tilboðskjúklinginn!!!! Ég býst við að Krónan hafi þurft að farga nokkrum kjúklingalíkum þá helgina. Legg til að okursíðan kanni verðmerkingar í Krónunni á Fiskislóð.

Kveðja,
Helga Jónsdóttir

laugardagur, 17. mars 2012

Skyrdrykkir minnka

Eftir að skráargatið var lögfest, minnkaði Mjólkursamsalan boxin fyrir skyrdrykkina um helming en selur boxið á sama verði. Ef þetta er ekki okur veit ég ekki hvað okur er. Það hefur ekki nokkur maður minnst á þetta opinberlega svo ég hafi séð. Við látum bjóða okkur allt út í það óendanlega...
Kveðja,
Bergþóra

120 gr hamborgarar í Krónunni (5 fyrir verð 3) eru bara 80 gr

Ég var að versla í Krónunni (í Lindum) og þar var tilboð 5 x 120 gr
hamborgarar á verði 3. Hljómar ágætlega en eitthvað fannst mér þessir
hamborgarar litlir miðað við að eiga að vera 120gr. svo ég bað
starfsmann í búðinni að vikta fyrir mig pakkninguna (plastbakki með 5
hamborgurum) og þetta reyndust vera 390 gr. Svo hver hamborgari hefur
ekki einu sinni náð því að vera 80 gr. Ég benti starfsfólkinu á þetta
að þetta væri röng merking og einn starfsmaðurinn tók tilboðs merkið
sem var hjá kælinum í burtu en ég hafði svosem á tilfinningunni að það
yrði sett upp um leið og ég labbaði út úr búðinni. Þetta var fyrir
rúmri viku síðan en í dag er ennþá verið að selja þessar pakkningar,
sem á stendur að hamborgararnir séu 120gr.
Kveðja, Bryndís

þriðjudagur, 13. mars 2012

Einkaklúbbstilboð

Nýti mér stundum Einkaklúbbinn þegar ég fer út að borða og finnst það góð auglýsing fyrir veitingastaði að auglýsa 2f1 (2 fyrir 1), þar sem gaman er að prófa nýja staði og ekki skemmir fyrir að fá 2f1.
Þetta átti hins vegar ekki við þegar ég ætlaði að nýta mér 2f1 tilboðið af matseðli hjá Hressingarskálanum um daginn. Mér var neitað um tilboðið þó að það standi skýrum stöfum í handbókinni að það sé í gildi allan daginn alla daga á þessum árstíma. Í EK auglýsingunni stendur milli 2-6 til 1. október en alltaf alla daga eftir 1. október.
Afgreiðslustelpan neitaði strax að gefa afláttinn þó að við sýndum henni auglýsinguna í bókinni og sagði að fólk hefði kvartað yfir þessu í vikunni. Yfirmaðurinn sagði að það væri aðeins afláttur á milli kl. 2-6. Hún hringdi aftur í yfirmanninn þegar við kvörtuðum yfir þessu og kom tilbaka og sagði þetta væri bara í gildi milli kl. 2-6 og við gætum sent póst ef við vildum ræða þetta eitthvað frekar. Ég sendi póst og hef ítrekað hann en ekki fengið nein svör...
Finnst bara prinsipp að fólk sem auglýsir hjá EK og tilboð yfir höfuð að það standi við það sem það segir og neiti ekki bara að gefa afsláttinn þegar kemur að því að borga. Við vinnufélagarnir munum allavega ekki fara aftur á Hressó í bjór og burger (sem voru báðir frekar þunnir) svo mikið er víst.
Mbkv. Una

mánudagur, 12. mars 2012

Okur-Epli

Eins og svo margir sem keypt hafa iPhone í USA þá þarf ég að fjárfesta í nýjum USB spennibreyti með íslenskri kló.
Á www.epli.is sem er heimasíða umboðsaðila Apple á íslandi er þessi spennibreytir til á 6.990 kr http://www.epli.is/apple-ipod-usb-power-adapter-1120.html
En á heimasíðunni www.isiminn.is sem er að selja Apple vörur er þessi sami spennibreytir til á 2490 kr. http://isiminn.is/product.php?id_product=363
Þetta er náttúrulega ekkert annað en græðgi og okur hjá þeim Eplismönnum á Laugarveginum.

Kv,
Auðunn Valsson

Stjörnur.is - neytendur teknir í nefið

Ég hef oft hugsað um það hvað væri gott ef Íslendingar sameinuðust um að nota einhvern af erlendu vefjunum - eða stofnuðu sinn eigin, þar sem hægt er að gefa stjörnur og komment vegna þjónustu fyrirtækja, lækna o.s.frv. Þegar ég sá að kominn væri vefur sem héti stjörnur.is var ég fyrst ánægð en varð síðan fyrir miklum vonbrigðum. Þarna sýnist mér verið að taka íslenska neytendur enn einu sinni í nefið og mér finnst við eigum að reyna að vekja athygli á því strax.
Neytandi sem vill skrifa umsögn um fyrirgæki eða þjónustu, gerir það líklega m.a. vegna þess að hann ber hag annarra neytenda fyrir brjósti. En um leið og hann setur texta inn á vefinn, afsalar hann sér rétti til að nota sömu orð á öðrum vettvangi! Og eigendur vefjarins sem fá lögverndaðan höfundarétt, mega nota ummælin á hvern þann hátt sem þeim sýnist! Ég trúi því ekki að þetta sé neytendum í hag - eða til þess gert yfir höfuð að þjóna neytendum. Því miður má gera ráð fyrir að afar fáir lesi skilmálana á vefnum. Eða hvað?

Kær kveðja
Bryndís

Af vefnum:
Stjörnur.is er í eigu Já Upplýsingaveitna hf. sem sjá jafnframt um rekstur vefjarins.

Með því að láta Já í té umsögn um fyrirtæki og/eða atvinnurekanda og vörur hans og þjónustu, veitir notandi vefsíðunnar, umsagnaraðili og/eða höfundur umsagnarinnar því hér með Já ótakmarkaðan, einhliða rétt til nýtingar og birtingar umsagnarinnar á þeim vettvangi og með þeirri aðferð og tækni sem Já þóknast, þar á meðal á vefsíðunni Já.is, auk þess sem sá aðili veitir Já fullan rétt til að gera önnur eintök af umsögn hans. Fellur sami aðili samhliða frá eigin rétti til nýtingar og birtingar umsagnarinnar á öðrum vettvangi og eintakagerðar af henni og nýtur hann þess réttar ekki eftir að hann hefur sent Já umsögn sína til birtingar, hvorki sjálfur né til framsals annarra aðila. Birting, nýting og eintakagerð umsagna sem er að finna á vefsíðunni er því öðrum aðilum en Já með öllu óheimil án skriflegs samþykkis Já. Brýtur slík notkun gegn lögvernduðum höfundarrétti Já og kann meðal annars að varða bótaskyldu.

sunnudagur, 11. mars 2012

Cintamani - Listaverð og outletverð

Ég fór á konukvöld Létt Bylgjunnar um daginn og sá Cintamani úlpur á 50% afslætti. Ein af þeim, Eir, átti að kosta rétt tæpar 30 þúsund, og 50% af því þá rétt tæpar 15 þúsund. Mér fannst þetta svo góður díll að ég gat ekki sleppt honum, þó þetta væri ekki óska Cintamani úlpan mín. En nóg um það. Ég fór svo á kassann og úlpan kom þar inn á rétt tæpar 20 þúsund, starfsmaðurinn fór þá í að breyta verðinu í kassanum upp í tæpar 30 þúsund (listaverðið) og tók svo 50% afsláttinn af því verði. Ég gerði athugasemd við þetta og starfsmaðurinn sagði mér að afslátturinn væri af listaverðinu en ekki outlet verðinu. Mér fannst þetta afar skrýtið en keypt samt úlpuna því mér fannst 15 þúsund krónur vera fínn díll. En mér finnst þetta afar vafasöm auglýsing hjá þeim. Að auglýsa úlpu á 50% afslætti, miða það við listaverðið en ekki outlet verðið og úlpan hvergi til sölu á listaverðinu.
Óskar nafnleyndar

fimmtudagur, 8. mars 2012

Viðgerð á símaskjá - usa/ísland

Vildi vekja athygli á því að ég hef keypti mér síma fyrir þremur árum síðan, nokia xpressmusic 5800. Ég lenti í því óláni að brjóta skjáinn í símanum tvisvar sinnum og kostaði viðgerðin 15000 kr hjá hátækni í gegnum vodafone. Skjárinn brotnaði nú í þriðja skiptið og er ég staðsettur í Bandaríkjunum. Ég keypti skjáinn á heilar 2000 kr og viðgerðin tók 30 min og ég borgaði þessar myndalegu 2000 kr í viðbót fyrir hana..

Ég reiknaði út hvað kostar að flytja inn skjáinn.

2000kr kostar hann
7,5% tollgjald - 2150kr
20% efnisskattur - 2580kr
25.5% virðisauki - 3238kr

Vodafone + Hátækni taka því 11.762 fyrir viðgerðina..

Okur, það held ég

Heiðar

Okursíðan komin á Facebook


Okursíðan er komin á Facebook. Fæst ekki feitt læk á það?
http://www.facebook.com/okursidan

sunnudagur, 4. mars 2012

Léleg þjónusta: Símafyrirtækið Hringdu

Mér leist mjög vel á að færa mig yfir í lítilmagnann eða nýja símafyrirtækið Hringdu, sá á heimasíðunni þeirra að þjónusta væri þeirra aðalatriði. Því miður er það ekki svo, hef aldrei fengið jafnlélega þjónustu hjá nokkru fyrirtæki, hvort sem er símafyrirtæki eða annað.
Færi mig yfir til þeirra um miðjan okt 2011 með síma og netið, þeir sjá um allt, segja upp og klára að setja allt í gang. Ég bað um að það yrði ekki hægt að hringja úr heimasíma í Gsm og það var ekkert mál. Það koma menn til okkar frá Gagnaveitunni og tengja allt. Við hjónin förum 2 dögum síðar erlendis og erum í mánuð í burtu.
Vorum hjá Tali með heimasíma og netið hjá Símanum. Rétt fyrir jól kemur reikningur frá Tali upp á 65.000 kr, þegar við höfum samband kemur í ljós að Hringdu höfðu klikkað á uppsögninni, dóttir mín notaði heimasímann og hringdi í gsm númer án hugsunar.
Venjulegur símareikningur var hjá okkur um 6-7.000 kr á mán. Ég fer til þeirra hjá Hringdu og tala við dömu þar í reikningadeildinni og biðst hún afsökunar og segir að þau reddi þessu.
Í millitíðinni fer reikningurinn í innheimtu hjá Mótus og er orðinn 80.000 kr - eftir ítrekaðar símahringingar og netpósta á alla aðila sem eru stjórnendur Hringdu kemur loks símtal frá Davíð nokkrum sem segir að þetta verði greitt, séu þeirra mistök og fæ ég staðfestingu á netpósti um það. Hann biður mig um reikningsnúmer sem ég sendi, en ég segi í leiðinni að sniðugast væri að hafa samband beint við Mótus og klára málið beint með þeim.
Núna fara að koma ítrekanir frá Mótus með hótun um lögfræðiinnheimtu, ég hringi, sendi netpósta, fer nokkurm sinnum niður í Hringdu og ekkert gerist, enginn við sem tekur ákvarðanir og allir humma þetta af sér.
Loks næ ég í framkvæmdarstjórann Játvarð og þá segir hann beint við mig að þeir ætli ekki að greiða reikninginn, eftir að hafa játa mistök sín, beðið um reikningsnúmer og lofað að greiða, þá hætta þeir við. Þeir hafa ekki fyrir því að láta mig vita né tala við mig þegar ég margreyni að hringja í þá eða sendi þeim póst.
Þetta er ein sú lélegasta þjónusta sem ég hef lent í. Eitt skiptið þegar ég beið eftir að ræða við yfirmann komu inn viðskiptavinir sem voru að kvarta undan sömu hlutum og ég.
Ég vil vara fólk eindregið við að eiga viðskipti við Hringdu - það virðist vera sú hugsun í gangi að ef viðskiptavinur lendir í einhverju er best að virða hann að vettugi þangað til að hann gefst upp. Þannig fyrirtæki endist ekki lengi í svona rekstri.
Ekki færa símaþjónustu/net yfir til Hringdu.
Kv,
Ingvar Ragnarsson

fimmtudagur, 23. febrúar 2012

Niðurlæging í bíó

Afhverju er oft hálfgerður bömmer að fara í bíó á Íslandi? Fyrst náttúrlega auglýsingafargan í 20 mín og svo oft allskonar rugl á sýningunni. Myndin ekki í fókus, alltof lágt stillt, allt í rugli með textann eða meira að segja að það er ekki slökkt í salnum (hér greinir kvikmyndagagnrýnandinn Haukur Viðar Alfreðsson frá ömurlegri reynslu í Kringlubíói, sem að hans mati er lélegasta bíó landsins).

Maður er að borga sig inn og því er lágmark að bíóin hafi basic hluti í lagi. Eins og að slökkva í salnum þegar myndin hefst!

Svo er annað mál – sem bíóin bera litla eða enga ábyrgð á - að sumir bara kunna ekki að fara í bíó. Eru blaðrandi saman út alla myndina (kannski búnir að gleyma að þeir eru ekki heima í stofu), eða talandi í farsíma og sms-andi lon og don. Lenti í þessu um daginn að síminn hjá einni í næstu röð hringdi og hún byrjaði að tala í símann (í stað þess að slökkva bara eins og hún hefði átt að gera - Hæ, heyrðu ég er í bíó og get ekki talað... Hvað segirðu? Bla bla bla...)

Fokking óþolandi!
Dr. Gunni

Æfingagjöld barna

Mig langar rosalega að heyra meiri umræðu um æfingargjöld barna. Mjög mikið er í boði af íþróttum fyrir börn og rosalega mismunandi hvað kostar. Ég ætla ekki að fara út í einstök félög og hvað kostar en það sem ég vil fá í umræðuna er hvað er boðið upp á fyrir peninginn, hvaða kröfur er hægt að gera þegar maður er búinn að borga fyrir ákveðna „þjónustu“ og hvaða rétt hefur maður ef maður vill ekki nýta „þjónustuna“ lengur.
Dóttir mín hefur prófað nokkrar íþróttagreinar sem kosta mis mikið og mjög mismikið sem maður er að fá fyrir peninginn. Hér eru nokkru atriði sem mér finnst skipta máli:

1) Að æfingarnar séu í boði (þe. Ekki felldar niður) og að þær séu á þeim tíma sem ákveðið var þegar maður greiðir.

2) Að þjálfarinn sé hæfur í starfi og jafnvel eftir því sem maður borgar meira gerir maður þær kröfur að þjálfarinn sé faglærður og vanur að vinna með börn.

3) Að hópurinn sem barnið er í á æfingu sé passlega stór (þe. að mínu viti ekki meir en 15 börn per þjálfara).

4) Að það sé tekið fram hvaða búnaður til íþróttaiðkunar sé innifalið í gjaldinu (sjaldan er um slíkt að ræða), að það sé tekið fram ca. hvaða önnur útgjöld maður getur átt von á, á æfingartímabilinu (t.d. mótsgjöld og ferðakostnaður).

5) Síðast en ekki síst að barnið hafi ánægju af að vera á æfingu og nái framförum.

Ég sendi nátturlega þetta bréf af gefnu tilefni þar sem ég var með dóttur mína í íþróttagrein sem er frekar dýr, (æfingargjaldið fyrir sept-des var 38.000 kr) en að sama skapi fékk ég það fyrir peninginn sem ég vildi. Þar var faglærður og þaulæfður þjálfari. Æfingartímar stóðust alltaf. (voru formlega í boði 2x í viku en svo var þriðji tíminn í boði aukalega án þess þó að vera „skilda“. Passlega stór hópur og barnið náði ágætis tengingu við krakkana í hópnum. Endað var á flottri og vel uppsettri sýningu í lok annar. (samt sem áður vildi dóttirin ekki halda áfram og hætti um áramótin).

Nú er barnið að æfa aðra íþrótt sem kostar 30.000 önnin, jafnlangir æfingartímar (þriðji tíminn samt ekki í boði). Þar er aftur á móti unglingsstelpur að kenna sem hafa greinilega mismikla reynslu, það sem verra er að það er ekki sami þjálfarin á þriðjudögum og laugardögum. Þar er sífellt verið að færa til eða fella niður tíma, dóttirin er ekki að ná tengingu, veit t.d. ekki hvað þjálfarinn heitir og þekkir enga krakka í hópnum. Sem er frekar leiðinlegt þar sem hún hafði óskaði stíft eftir að æfa þessa íþrótt og fór að æfa fjarri hennar heima hverfi án þess að þekkja fyrir neinn í hópnum.

Þætti vænt um ef þessar umræðu væri velt upp einhversstaðar.

Kveðja,
Sigrún Guðný Pétursdóttir